Jáá Flott!
Jáá flott.. jæja.. nennti ekki að vera á blog.central lengur.. þannig maður fer bara beint á bloggar...
Allavega.. Þorrablótið ógurlega nálgast bráðum.. ójá.. það nálgast.. og maður hefur svo sannarlega beðið lengi! loksins.. matur, skemmtun oooog ball! allt í einum pakka.. það gerist ekki betra skal ég segja þér..
jújújú.. maður er annars bara hress hérna í fjúkinu..
Það er að frétta að maður er bara í skólanum til 6 á daginn og læti.. það tekur á að læra svona.. svo í ofanálag koma ökutímarnir.. og maður er orðinn sálarlega búinn eftir daginn.. ójá.. svo þess á milli prjónar maður vettlinga og mokar útidyratröppur..
jújú ég fann mína kvenlegu hlið þegar mig langaði allt í einu að prjóna vettlinga..
En þetta er nú komið gott held ég nú!
Sjáumst hress á Þorrablóti!!
- Sigrún | Litli Kúabóndinn
