Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Eva Helgadóttir
  • Staður: Skagafjörður
  • Atvinna: Kúabóndi ásamt því að vera þrífi- og eldabuska
  • Hjúskaparstaða: á föstu..
  • Um mig: Lítil sveitastelpa úr Skagafirði. Afar mikill áhugi fyrir alvöru Skagfirsku djammi!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari

Jæja jæja..

09. ágúst 2008 klukkan 21:32
Jæjjjjja já.. nú er ég komin aftur fyrir framan tölvuna með lyklaborðið að vopni.. spurning hvað verður úr þessu öllu saman..
Ég er allavega bara búin að vera skemmta mér í vinnunni og dunda mér heima þess á milli.. sem minnir mig á að mig langar í KÖKU..
úff úff úff.. það hefur ýmislegt á daga mína drifið.. ég er búin að vinna og vinna í júlí.. kærastinn horfinn úr myndinni fyrir þá sem vissu ekki af því.. alltaf er þetta ómögulegt hjá mér einhverra hluta vegna..
Oooog ég sólbrann svo að ég kláraði næstum heilan after sun brúsa á axlirnar á mér og stuttu seinna fóru þær að flagna takk fyrir.. það var rather ógeðslegt.... Jááá.. það tekst svo sannarlega ekki öllum að brenna svo þeir flagni hér á okkar kalda Íslandi, een auðvitað tókst mér það..
Allavega.. maður er bara í stuði.. búin að dunda sér úti í góða veðrinu á meðan maður er í fríi frá vinnunni.. skelltum lillunum út og sollis..

Og hei.. fréttir.. Annar hundur mættur á heimilið.. eða réttara sagt tík.. hún heitir Skotta og Óskar Páll átti hana áður.. svo varð hann að losa sig við hana og slysaðist til að spurja mig hvort ég vildi hana og ég auðvitað benti strax á Dísu skvís.. sem auðvitað gat ekki neitað svona krúttí hundi, sem liggur nú mér við hlið..

jæja.. nú er ég held ég búin með kvótann í bili.. maður kann bara ekki að blogga lengur, það er alveg fullkomlega ljóst.. verið sæl, og munið að hlusta á Where the wild roses grow með Nick Cave OG Good morning Judge með 10cc.. þetta er bara hreinlega ómetanleg tónlist..

All beauty must die
Sigrún | Litli Kúabóndinn
 
Arna
They called me The Wild Rose... But my name was Elisa Day ... ótrúlega gott lag
mér finnst alltaf gaman að lesa bloggin þín þannig að þú verður að blogga fyrir mig :D
#1
11. ágúst 2008 klukkan 10:18
haha.. jáá ég reyni mitt besta hér.. það er samt ansi erfitt að nenna sko.. :/
#2
11. ágúst 2008 klukkan 17:23
 
Danni party
ég ætla að taka heiðurinn af því að hafa kennt þessari stúlku á vini mína í 10CC og Nick Cave hahaha
#3
11. ágúst 2008 klukkan 21:15
Nick Cave er töffari, ég hef farið á tónleika með honum ! bara svona til að monta mig aðeins :P
En já, sólbruni er afsprengi djöfulsins, fátt jafn pirrandi!!
Oooog, ég hef ekkert meira að segja... Hafðu það gott? Já, það er ágætis endir á kommenti!

Hafðu það gott ;)
#4
25. ágúst 2008 klukkan 23:27
haha takk sóley mín..;) og já sólbruni er afsprengi djöfulsins, það er sannleikurinn.. sem þýðir bara það að við þurfum að uppræta djöfulinn, hvernig sem við förum að því.. En hvað á það eiginlega að þýða að fara svona burt af norðurlandinu?? maður verður bara sár.. :/
#5
29. ágúst 2008 klukkan 10:53

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur