Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Eva Helgadóttir
  • Stađur: Skagafjörđur
  • Atvinna: Kúabóndi ásamt ţví ađ vera ţrífi- og eldabuska
  • Hjúskaparstađa: á föstu..
  • Um mig: Lítil sveitastelpa úr Skagafirđi. Afar mikill áhugi fyrir alvöru Skagfirsku djammi!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari

SöngVAkeppni

13. apríl 2008 klukkan 19:04

Það er partýstuð á þessu.. Við skvísur skelltum okkur á Akureyrina, og Óskar fékk að fljóta með.. fyrsta viðkoman var að skella minnstu skvísunni til pabba síns í pössun yfir helgina.. Svo fóru hinar stærri skvísurnar til tattoo kallsins sem heitir Jónas.. og fengu sér tattoo til að vera enþá meira töff.. ójá.. í millitíðinni fórum við Óskar til Erlu Perlu bestu frænku ever.. og hlóðum dótinu á hana.. fengum ljúffengann kjúkling hjá gömlu góðu og leiðin lá síðan að ná í skvísurnar.. sem voru nú komnar með tattoo og læti..

Svo var bara chillað heima hjá Erlu og við bara fórum snemma í háttinn eftir að hafa leigt okkur mynd og glápt á imbann.. þvílík stemning á okkur.. Vöknuðum hressar fyrir 8 næsta morgun.. af engri sérstakri ástæðu.. en náðum þó örlitlum svefn í viðbót.. síðan skelltum við okkur á Glerártorgið og keyptum sitt lítið af hverju..
græna brosandi kermit peysu.. Allavega síðan keypti Heiða Bróðir minn Ljónshjarta.. og við gláptum á hana.. og höfðum ekkert að gera fyrr en fremingin hjá Jóni Pétri byrjaði.. sem betur fer máttum við koma.. annars hefðum við verið að slæpast allann daginn.. allavega.. fullt af góðum mat og góðu fólki þar á ferð.. síðan kom að söngvakeppninni.. og við sátum þar og hvöttum okkar fólk til dáða.. Keppnin fór vel fram.. fyrir utan gífurlega hitann sem var þarna.. og þvílík ánægja sem það var að horfa á Bændaskólann minn.. þetta er alveg greinilega framtíðin sko.. þeir voru svalari en lífið..
Ballið var svo á eftir.. og við Heiða skemmtum okkur alveg ágætlega meðan hitt draslið fór heim.. Við vorum í grúppu með Garðari og fleirum og dönsuðum eins og meiníak meðan hægt var.. svo fór góða hljómsveitin og það kom eitthvað voða teknó í staðinn og það sökkaði.. þannig við drifum okkur heim að sofa.. og ég keyrði útaf og útí skurð í draumnum mínum.. afþví það var allt á kafi í nautahakki á veginum..

Svo fórum við bara heim í dag.. og þvílík unun að vera komin aftur heim til sín.. og fá að sofa í sínu rúmi og svona.. ég held ég fari aldrei að heiman.. hehe.. jú.. þegar ég fer á Hvanneyri..

Jæja.. þetta er nú komið gott.. held ég fari að gera eitthvað gagn eða borða meira og meira.. hittumst heil gott fólk..

- Sigrún á Reynistað

teknó getur verið ágætt hvað er þetta ;) haha oj vera að keyra í kjöti... oj...
já það verður alltaf geggjað heitt á þessum söngvakeppnum... en gott að það var gaman mín kæra.. :D
#1
13. apríl 2008 klukkan 19:11
Takk fyrir æðislega helgi sæta mín;)
Ég skil ekki þennann hita í ykkur á söngvakeppninni því mér var sko EKKERT heitt og ég sat við hliðina á ykkur!! Þið eruð kannski bara komnar á breytingaskeiðið:D
En já ég er voða fegin að hafa farið á ballið með þér, það var ótrúlega gaman og vð fórum heim alveg á réttum tíma;)
Ég gæti bablað í marga klst. um þessa ferð, en læt gott heita að sinni;)
#2
13. apríl 2008 klukkan 19:12
 
Ragga :)
"og ég keyrði útaf og útí skurð í draumnum mínum.. afþví það var allt á kafi í nautahakki á veginum.. "

HAHAHA vá hvað ég hló af þessu, þetta er svo týbískur Sigrúnardraumur e-ð !! Ahahahaha ég heyri þig bara segja þetta þegar ég les þetta .. æjæjæj FYNDIÐ =D

Haha mér fannst þetta líka fyndið "þvílík ánægja sem það var að horfa á Bændaskólann minn.. þetta er alveg greinilega framtíðin sko.. þeir voru svalari en lífið.. "

"þeir voru svalari en lífið" true story haha =D

MAMMA ÁTTI AFMÆLI Í GÆR!!!! þú verður að fara að koma í heimsókn svo pabbi haldi ekki að þú sért dauð einhversstaðar útí skurði ;)
#3
23. apríl 2008 klukkan 19:04
HAHAHAAHAHA....:´) Þig dreymir alltaf svo skrýtna drauma...=P Einhverntímann dreymdi þig tannburstann þinn og núna að þú værir að keyra í nautahakki=D ég verða að segja að draumarnir þínir eru soldið spez....

En ég tek alveg undir það að Bændaskólinn var með snildar atriði á söngvakeppninni=D

Sé þig í skólanum gella;D
#4
28. apríl 2008 klukkan 19:17
Reykvíkingarnir mínir töpðu sér yfir bændaskólanum...ég er að tala um svoooooona langt vá og geðveikt, alveg svona líka í gríð og erg :O og alveg ofboðslega miklu tíhíhí yfir myndbandinu

Ég dó næstum því úr stolti þegar FNV varð í öðru sæti. True story. Missti mig allavega í skrækjum og fjarðernishyggju og gleði ;p Varð líka alveg svoldið meir þegar ég labbaði inn í FNV herbergið í VMA og heyrði í Ljótu hálfvitunum og fór að dansa skagfirskan dans, það var móment.

En segi nú bara eins og þú, æðislegt að hitta þig þarna fyrir norðan, og frábært að þér fannst líka gaman, þetta verður pottþétt árleg ferð:D
#5
29. apríl 2008 klukkan 20:20
hahaha.. jááá.. draumarnir eru skrítnir..

hahahaha fjarðernishyggja.. þetta kætti mig yfir prófalestrinum.. hahahaha
#6
12. maí 2008 klukkan 13:59

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur