Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sigrún Eva Helgadóttir
  • Stađur: Skagafjörđur
  • Atvinna: Kúabóndi ásamt ţví ađ vera ţrífi- og eldabuska
  • Hjúskaparstađa: á föstu..
  • Um mig: Lítil sveitastelpa úr Skagafirđi. Afar mikill áhugi fyrir alvöru Skagfirsku djammi!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari

Vonbrigđisblogg

08. apríl 2008 klukkan 22:07

Og já.. þetta blogg er bara til að lýsa vonbrigðum dagsins..

En ekki allt er vonlaust.. Dagurinn fór líka ágætlega fram.. Ég fór voða hress og kát í skólann í morgunn, og mætti korter of seint.. En hvað er korter milli vina ha?? Jújú.. svo fór það svo að ég fór í geeeðveikann dönskutíma, afþví hann var svo stuttur þá var hann svona frábær.. svo fór ég bara að vera einmana á vistinni og bíða eftir matnum.. og jesús.. maturinn var bara að biðja mig um að kommenta um hann.. því þetta hakk var meira svona 60% hakk og 40% vatnssull.. geri aðrir betur segi ég nú bara.. allavega, maturinn var alveg ágætur, svo var bara skellt sér í íslenskutíma og það var sveitt partý.. með Snorra og félögum.. Svo var skellt sér inná Nemó að kaupa miða á sætu söngkeppnina.. ójá.. þetta heitir víst söngkeppni en ekki söngvakeppni.. ég fatta ekki muninn.. allavega.. þá leið að efnafræðinni... og ég var alvarlega freðin.. gat ekkert í þessum blessaða mólreikningi.. svo fór ég bara að annast hana litlu lúsí mína.. það var stuð á okkur gellunum.. fórum bara út í kuldann að labba.. fórum að skoða tréin og svona.. og svo auðvitað á Ábæ að kaupa ís.. svo tilkynnti skvísan mér það að það væri mál að fara heim.. því við þyrftum alveg nauðsynlega að skipta um bleiju.. ekki það að hún hafi verið sátt með það.. ónei alls ekki..

En vonbrigði dagsins;
Ég missti af Arsenal leiknum sem ég ætlaði svo mikið að hrofa á..
Arsenal tapaði leiknum.. og þessar fáu mínútur sem ég sá.. voru hreint út sagt sorglegar, ég hef ekki séð annað eins.. Arsenal áttu bara að vinna þetta..
Svo var kakan búin sem ég var búin að plana að borða síðan í gær.. þá varð ég enþá sorgmæddari..
Og nú langar mig í kjúklingasalat með sinnepsósu..

Nóg komið af vonbrigðum.. verum glöð og kát.. því bráðum er söngVAkeppni..!!

 
Arna
úff þessu leikur var snilld.... alveg frábær - Walk on, walk on, with hope in your heart,
And you'll never walk alone....You'll never walk alone. ... ÓJÁ :D

ég fer ekki á songvakeppnina... ég er svo löt... þú skemmtir þér fyrir mig...
ég er voðalega syfjuð núna, sé rúmið mitt í hyllingum...

jæja sjáumst sem fyrst
#1
09. apríl 2008 klukkan 03:52
uss.. að þú skulir láta þessi úr munni þínum kona.. :O nú er ég ekki sátt við þig góða mín.. en jáá.. ég mun skemmta mér.. með Erlu frænks sko.. og svona liði sko.. jújú.. vonum bara það besta.. og ég sé rúmið mitt alltaf í hyllingum..;)
#2
09. apríl 2008 klukkan 11:55
Það á eftir að vera geggjað stuð á SÖNGVAKEPPNINNI!!! söngkeppni?? neibb passar bara ekki!!! En allaveg þá hlakka ég geðveikt til;)
Hver veit nema við endum röltandi um Akureyrabæ syngjandi: Við erum tvær úr tungunum :D
#3
09. apríl 2008 klukkan 22:44

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur