Árshátíđin! =)
jæææja.. nú er allt saman yfirstaðið sem maður var að hlakka svo ógurlega mikið til..
Jú mikið rétt.. árshátíðin er búin.. sem er alveg ágætt að vissu leyti,, maður veit að tíminn líður allavega...
Allavega.. smá díteil um helgina..;
Maður skellti sér í "skartgripasmíð" á opnu dögunum.. það var ekki flóknara en það að þæfa kúlur, setja þær uppá vír með öðrum kúlum og búið mál.. ekki mjög erfitt verð ég að segja.. een svo skelltum við okkur heim í mat.. sem var góður,, minnir mig.. síðan fórum við í "spilahóp" sem var allt annað en spennandi.. því við spiluðum bara trivial pisuit eða eitthvað síðan 1995.. og enginn vissi neitt.. þannig það var bara leiðinlegt.. síðan fór bara allur dagurinn í að undirbúa sig fyrir árshátíðina..
Við Þórdís vorum mættar hjá Heiðu "aðalplanleggjara" og "höfuðpaurs" aðalgelluliðsins okkar.. og þar var hún bara búin að kaupa þvílíkt magn af nammi.. svona svo við lifðum af planleggið og málinguna og hárgreiðslurnar..
Semsagt.. það var étið nammi, hlustað á júróvisjón, málað sig, krullað og slétt hár og svona nokkuð..
og nokkuð merkilegt gerðist.. ég var einum sokkabuxum fátækari.. þar sem þær bara hreinlega gufuðu upp heima hjá Heiðu og finnast ekki enþá.. sem betur fer var Þórdís með akkúrat réttu vara sokkabuxurnar.. þannig allt bjargaðist..
Ooog árshátíðin sjálf var alveg hreint brillíant.. SÉRSTAKLEGA myndbandð sem Danni og Aron gerðu.. jesús.. það bara made my day sko.. Þetta er rétti húmorinn!!
Nú svo skelltum við okkur heim til Sóleyjar.. og allir skiptu um föt nema ég.. því ég var ekki alveg jafn formlega klædd og allar hinar.. þannig Sóley hellti sig fulla af rósavíni til að lifa af 16 ára ball.. allavega.. svo kíktum við til Stefáns.. sem var soldið einmana með hundinum sem ég man ekki alveg hvað heitir.. og við komum okkur svo á ballið.. þar sem maður hitti fólkið sitt og dansaði við margann manninn.. þetta var bara alsherjar stuð!!
Síðan var maður bara kominn heim um 4 leytið og tók að hátta sig og koma sér í rúmið..
Laugardagurinn fór bara í að slappa af.. og jú að sjálfsögðu að hjálpa gamla manninum í fjósinu..
Sem minnir mig á það að einn lítill lilli dó í fjósinu.. það gerði mig sorgmædda...
Svo er Sunnudagurinn bara búin að snúast um ekki neitt.. maður vaknaði bara seint og slæpaðist eitthvað og svo bara moka korni upp úr fiskeldiskari og svona.. pretty ordinary sko.. svo bara mjólka og kíkja á kusurnar sínar.. ekki mikið flóknara en það..
Og nú situr maður og bíður vinsamlegast eftir páskafríinu.. sem veðrur aðal partytíminn.. óóójáá.. ![]()
Hehe.. þetta er eina myndin sem ég grét yfir sem krakki.. Var víst alveg með skeifu á munninum.. því aumingja andarunginn var svo einn...![]()
En þetta er komið gott hjá mér hérna.. ég efast stórlega um að fólk hafi þolinmæði í mikið meira..
Venlig Hilsen!
Sigrún | Litli Kúabóndinn
En ég er sammála Heiðu, þú þarft að eldast aðeins og skella þér með okkur á 18 ára böll! (það er allavegana mun skárra en hún gamla ég á 16 ára böllum ;)
En gaman að lesa bloggin þín, keep up the good work;)
ég reyni að standa mig í þessu.. og kíktu nú endilega á smá ballstand um páskana.. :D

Ballið það var bara geggjað, en mintu mig á að vera í hentugri skóm næst;)
En ég held að við stelpurnar verðum eitthvað að reynað elda þig svo þú komist á 18 ára böllin, það gengur ekki að skilja þig alltaf útundan því þá erum við ekki Fab Five!!!
ps. þegar ég segi "elda þig" þá á ég ekki við að við ætlum að "matreiða" þig;)