langt síđan síđast..
Jæja.. langt síðan síðast maður..! það er meira að segja svo langt síðan að ég mundi einfaldlega ekki passwordið fyrr en eftir nokkrar tilraunir.. það er svona þegar maður gerir ekkert annað en að hanga á facebook og lesa bækur..
Ég hef fundið aðra ást í lífi mínu.. TWILIGHT.. þessar bækur.. ég bara hreinlega get ekki líst því hvað þær eru geeeeðveikar.. og myndirnar eru aaaalls ekki verri..
Eeeen allavega.. ég er bara svona búin að hangsa þetta svona síðustu mánuðina.. er alveg að brenna í skinninu í að komast suður í háskólann eftir stúdentinn.. Þetta ár á eftir að vera best í heimi.. klára þennan blessaða skóla, bara vinna heima á meðan.. fara svo beint í skemmtilegu vinnuna á Löngumýri og svo suður með honum Danna mínum í háskóla..! þetta verður bara æðislegt..!
Jæja.. ætli þetta sé ekki komið gott.. maður verður nú að fara elda einhvern mat hérna á heimilinu..!
- Litli Kúabóndinn
Dk og slíkt..

En tetta er samt sem ádur gaman og gott, skemmtilegt frí svona til tilbreytingar..
En sjáumst sídar gott fólk... mig langar smá heim í sveitina aftur..
Venlig hilsen!
Lónlí blú bojs..
Nýjustu fréttir eru svo þær að við skvísurnar 3 ætlum að fara til Danmerkur eftir prófin um jólin..
Framundan eru núna réttir og lærdómur.. Ég er einmitt að fara skella mér heim í smalamennsku á eftir.. jafnvel þótt þolið sé sama og ekkert og kvefpestin hafi gert vart við sig.. Jú.. ég er einmitt búin að vera þegjandi hás í viku núna.. en röddin er farin að láta í sér heyra núna.. Margur maðurinn er búin að hlæja að ólhljóðunum í mér.. en hvað getur maður gert þegar maður öskrar aðeins of mikið með Poison og þykist vera betri en Alice Cooper.. það hefur augljóslega ekki tekist samkvæmt hæsinu.. Jú.. ég var í partýi um helgina hjá Heiðu skvís.. sem var að halda uppá 20 ára afmælið sitt.. það var stuð í lagi.. þrátt fyrir sárindi í hálsi sem vildu ekki lagast með swiss missinu úr KS Varmahlíð.. ég skelli skuldinni bara á Swiss Miss framleiðendurna, engan vegin KS Varmahlíð sem stendur ætíð fyrir sínu..
Jæja.. það styttist óðum í stærðfræðitíma.. ég nenni því bara hreinast sagt alls ekki.. mig langar bara heim að sinna sveitastörfunum eins og venjulega.. það er alltaf gaman og róar litlu taugarnar sem alltaf eru spenntar..
Þetta var langt blogg og ég nenni ekki skrifa meira.. þetta hlýtur að duga þessum fáu hræðum sem lesa þetta vesæla blogg.. Vel á minnst þá fékk ég sms frá Streymi.is og þar fékk ég upplýsingar um að síðan mín væri eitthvað í kringum 1500 vinsælasta blogsíðan á bloggar.is... þvílíkar vinsældir.. hvorki meira né minna en 2 heimsóknir á þeim degi takk fyrir.. þetta sms var þvílíkt aðhlátursefni hjá mér.. vakti mikila kátínu meðal manna.. hehe..
Jæja, bless belss kæra Dagbók, svo ég vitni í Bert bækurnar...
Jćja jćja..
Ég er allavega bara búin að vera skemmta mér í vinnunni og dunda mér heima þess á milli.. sem minnir mig á að mig langar í KÖKU..
úff úff úff.. það hefur ýmislegt á daga mína drifið.. ég er búin að vinna og vinna í júlí.. kærastinn horfinn úr myndinni fyrir þá sem vissu ekki af því.. alltaf er þetta ómögulegt hjá mér einhverra hluta vegna..
Oooog ég sólbrann svo að ég kláraði næstum heilan after sun brúsa á axlirnar á mér og stuttu seinna fóru þær að flagna takk fyrir.. það var rather ógeðslegt.... Jááá.. það tekst svo sannarlega ekki öllum að brenna svo þeir flagni hér á okkar kalda Íslandi, een auðvitað tókst mér það..
Allavega.. maður er bara í stuði.. búin að dunda sér úti í góða veðrinu á meðan maður er í fríi frá vinnunni.. skelltum lillunum út og sollis..
Og hei.. fréttir.. Annar hundur mættur á heimilið.. eða réttara sagt tík.. hún heitir Skotta og Óskar Páll átti hana áður.. svo varð hann að losa sig við hana og slysaðist til að spurja mig hvort ég vildi hana og ég auðvitað benti strax á Dísu skvís.. sem auðvitað gat ekki neitað svona krúttí hundi, sem liggur nú mér við hlið..
jæja.. nú er ég held ég búin með kvótann í bili.. maður kann bara ekki að blogga lengur, það er alveg fullkomlega ljóst.. verið sæl, og munið að hlusta á Where the wild roses grow með Nick Cave OG Good morning Judge með 10cc.. þetta er bara hreinlega ómetanleg tónlist..
All beauty must die
Sigrún | Litli Kúabóndinn
nenni ei
Jæja.. annars er komið soldið langt síðan ég skrifaði hérna síðast.. enda hefur lítið gengið á hjá mér.. bara sitthvað í sveitinni, próf í skólanum og eitt stykki kærasti kominn í spilið..
Reyndar er ég búin að vera í svo góðu skapi uppá síðkastið.. enda ekki annað hægt þegar manni líður vel, hefur nóg að gera og á góðan mann..
Jæja.. við getum öll verið sammála um hvað þetta var glatað blogg, en mér er heldur betur sama því ég er í svo góðu skapi..
Sigrún | Litli Kúabóndinn -- sem er komin á fast
SöngVAkeppni
Það er partýstuð á þessu.. Við skvísur skelltum okkur á Akureyrina, og Óskar fékk að fljóta með.. fyrsta viðkoman var að skella minnstu skvísunni til pabba síns í pössun yfir helgina.. Svo fóru hinar stærri skvísurnar til tattoo kallsins sem heitir Jónas.. og fengu sér tattoo til að vera enþá meira töff.. ójá.. í millitíðinni fórum við Óskar til Erlu Perlu bestu frænku ever.. og hlóðum dótinu á hana.. fengum ljúffengann kjúkling hjá gömlu góðu og leiðin lá síðan að ná í skvísurnar.. sem voru nú komnar með tattoo og læti..
Svo var bara chillað heima hjá Erlu og við bara fórum snemma í háttinn eftir að hafa leigt okkur mynd og glápt á imbann.. þvílík stemning á okkur.. Vöknuðum hressar fyrir 8 næsta morgun.. af engri sérstakri ástæðu.. en náðum þó örlitlum svefn í viðbót.. síðan skelltum við okkur á Glerártorgið og keyptum sitt lítið af hverju.. græna brosandi kermit peysu.. Allavega síðan keypti Heiða Bróðir minn Ljónshjarta.. og við gláptum á hana.. og höfðum ekkert að gera fyrr en fremingin hjá Jóni Pétri byrjaði.. sem betur fer máttum við koma.. annars hefðum við verið að slæpast allann daginn.. allavega.. fullt af góðum mat og góðu fólki þar á ferð.. síðan kom að söngvakeppninni.. og við sátum þar og hvöttum okkar fólk til dáða.. Keppnin fór vel fram.. fyrir utan gífurlega hitann sem var þarna.. og þvílík ánægja sem það var að horfa á Bændaskólann minn.. þetta er alveg greinilega framtíðin sko.. þeir voru svalari en lífið..
Ballið var svo á eftir.. og við Heiða skemmtum okkur alveg ágætlega meðan hitt draslið fór heim.. Við vorum í grúppu með Garðari og fleirum og dönsuðum eins og meiníak meðan hægt var.. svo fór góða hljómsveitin og það kom eitthvað voða teknó í staðinn og það sökkaði.. þannig við drifum okkur heim að sofa.. og ég keyrði útaf og útí skurð í draumnum mínum.. afþví það var allt á kafi í nautahakki á veginum..
Svo fórum við bara heim í dag.. og þvílík unun að vera komin aftur heim til sín.. og fá að sofa í sínu rúmi og svona.. ég held ég fari aldrei að heiman.. hehe.. jú.. þegar ég fer á Hvanneyri..
Jæja.. þetta er nú komið gott.. held ég fari að gera eitthvað gagn eða borða meira og meira.. hittumst heil gott fólk..
- Sigrún á Reynistað
Vonbrigđisblogg
Og já.. þetta blogg er bara til að lýsa vonbrigðum dagsins..
En ekki allt er vonlaust.. Dagurinn fór líka ágætlega fram.. Ég fór voða hress og kát í skólann í morgunn, og mætti korter of seint.. En hvað er korter milli vina ha?? Jújú.. svo fór það svo að ég fór í geeeðveikann dönskutíma, afþví hann var svo stuttur þá var hann svona frábær.. svo fór ég bara að vera einmana á vistinni og bíða eftir matnum.. og jesús.. maturinn var bara að biðja mig um að kommenta um hann.. því þetta hakk var meira svona 60% hakk og 40% vatnssull.. geri aðrir betur segi ég nú bara.. allavega, maturinn var alveg ágætur, svo var bara skellt sér í íslenskutíma og það var sveitt partý.. með Snorra og félögum.. Svo var skellt sér inná Nemó að kaupa miða á sætu söngkeppnina.. ójá.. þetta heitir víst söngkeppni en ekki söngvakeppni.. ég fatta ekki muninn.. allavega.. þá leið að efnafræðinni... og ég var alvarlega freðin.. gat ekkert í þessum blessaða mólreikningi.. svo fór ég bara að annast hana litlu lúsí mína.. það var stuð á okkur gellunum.. fórum bara út í kuldann að labba.. fórum að skoða tréin og svona.. og svo auðvitað á Ábæ að kaupa ís.. svo tilkynnti skvísan mér það að það væri mál að fara heim.. því við þyrftum alveg nauðsynlega að skipta um bleiju.. ekki það að hún hafi verið sátt með það.. ónei alls ekki..
En vonbrigði dagsins;
Ég missti af Arsenal leiknum sem ég ætlaði svo mikið að hrofa á..
Arsenal tapaði leiknum.. og þessar fáu mínútur sem ég sá.. voru hreint út sagt sorglegar, ég hef ekki séð annað eins.. Arsenal áttu bara að vinna þetta..
Svo var kakan búin sem ég var búin að plana að borða síðan í gær.. þá varð ég enþá sorgmæddari..
Og nú langar mig í kjúklingasalat með sinnepsósu..
Nóg komið af vonbrigðum.. verum glöð og kát.. því bráðum er söngVAkeppni..!!
Árshátíđin! =)
jæææja.. nú er allt saman yfirstaðið sem maður var að hlakka svo ógurlega mikið til..
Jú mikið rétt.. árshátíðin er búin.. sem er alveg ágætt að vissu leyti,, maður veit að tíminn líður allavega...
Allavega.. smá díteil um helgina..;
Maður skellti sér í "skartgripasmíð" á opnu dögunum.. það var ekki flóknara en það að þæfa kúlur, setja þær uppá vír með öðrum kúlum og búið mál.. ekki mjög erfitt verð ég að segja.. een svo skelltum við okkur heim í mat.. sem var góður,, minnir mig.. síðan fórum við í "spilahóp" sem var allt annað en spennandi.. því við spiluðum bara trivial pisuit eða eitthvað síðan 1995.. og enginn vissi neitt.. þannig það var bara leiðinlegt.. síðan fór bara allur dagurinn í að undirbúa sig fyrir árshátíðina..
Við Þórdís vorum mættar hjá Heiðu "aðalplanleggjara" og "höfuðpaurs" aðalgelluliðsins okkar.. og þar var hún bara búin að kaupa þvílíkt magn af nammi.. svona svo við lifðum af planleggið og málinguna og hárgreiðslurnar..
Semsagt.. það var étið nammi, hlustað á júróvisjón, málað sig, krullað og slétt hár og svona nokkuð..
og nokkuð merkilegt gerðist.. ég var einum sokkabuxum fátækari.. þar sem þær bara hreinlega gufuðu upp heima hjá Heiðu og finnast ekki enþá.. sem betur fer var Þórdís með akkúrat réttu vara sokkabuxurnar.. þannig allt bjargaðist..
Ooog árshátíðin sjálf var alveg hreint brillíant.. SÉRSTAKLEGA myndbandð sem Danni og Aron gerðu.. jesús.. það bara made my day sko.. Þetta er rétti húmorinn!!
Nú svo skelltum við okkur heim til Sóleyjar.. og allir skiptu um föt nema ég.. því ég var ekki alveg jafn formlega klædd og allar hinar.. þannig Sóley hellti sig fulla af rósavíni til að lifa af 16 ára ball.. allavega.. svo kíktum við til Stefáns.. sem var soldið einmana með hundinum sem ég man ekki alveg hvað heitir.. og við komum okkur svo á ballið.. þar sem maður hitti fólkið sitt og dansaði við margann manninn.. þetta var bara alsherjar stuð!!
Síðan var maður bara kominn heim um 4 leytið og tók að hátta sig og koma sér í rúmið..
Laugardagurinn fór bara í að slappa af.. og jú að sjálfsögðu að hjálpa gamla manninum í fjósinu..
Sem minnir mig á það að einn lítill lilli dó í fjósinu.. það gerði mig sorgmædda...
Svo er Sunnudagurinn bara búin að snúast um ekki neitt.. maður vaknaði bara seint og slæpaðist eitthvað og svo bara moka korni upp úr fiskeldiskari og svona.. pretty ordinary sko.. svo bara mjólka og kíkja á kusurnar sínar.. ekki mikið flóknara en það..
Og nú situr maður og bíður vinsamlegast eftir páskafríinu.. sem veðrur aðal partytíminn.. óóójáá.. ![]()
Hehe.. þetta er eina myndin sem ég grét yfir sem krakki.. Var víst alveg með skeifu á munninum.. því aumingja andarunginn var svo einn...![]()
En þetta er komið gott hjá mér hérna.. ég efast stórlega um að fólk hafi þolinmæði í mikið meira..
Venlig Hilsen!
Sigrún | Litli Kúabóndinn
rćrćrć..
Jesús almáttugur.. það sem þessi prófavika er búin að taka á..
skvísan skellti sér í hvorki meira né minna en 3 próf sama daginn.. enda var maður búin á líkama og sál eftir daginn.. þannig.. maður fór víst í 5 próf á 2 dögum.. það er reyndar ljúft að eiga bara 2 próf eftir eftir helgina.. (haha.. eftir eftir.. þetta hljómar undarlega..) Allavega.. nú er maður bara að reyna að læra fyrir stærðfræði próf.. ég held ég hafi aldrei skilið jafn lítið í stærðfræði.. held bara hreinlega að ég fái lágt í þessum áfanga.. ![]()
Eeen aðallinn á þessari helgi.. við skvísurnar skelltum okkur í kjólainnkaup á akureyrinni á laugardeginum.. það var heldur betur geðveikt.. Dísan keypti sér þvílíkan samkvæmiskjól.. og Heiðan var auðvitað búin að redda þessu á undan okkur hinum.. ég keypti mér líka kjól.. og úlpu (kominn tími til!).. þannig við verðum soldið mikið heitar á þessari árshátíð.. nema.. maður hefur ekki enn náð að redda sér herra.. hvað gera bændur þá..?? ![]()
Júú.. þeir leggja höfuðið í bleyti og hugsa sig vandlega um.. og viti menn.. ekkert gengur.. þannig vinsamlegast látið vita ef einhverjum vantar dömu á árshátíðina.. því herralaus fer maður nú ekki..!![]()
Allavega.. þar sem ég nenni ekki að læra.. þá bara blogga ég í staðin.. og hlusta á eitthvað stórfurðulegt lag.. sem er annars mjög flott..![]()
og ég skora á fólk að reyna að íslenska þennan texta!!
The ground
They lowered a tow that stuck in his neck to the gills
Fragments of sobriquets
Riddle me this:
Three half eaten corneas
Who hid the aureole
Stalk the ground
Stalk the ground
You should have seen
The curse that flew right by you
Page of concrete
Stain walks crutch and hobbled sway
Auto de fe
A capillary hint of red
Only this manupod <-- <--- <--- <--- <--- <--- <--- <--- <--- <--- <---
Crescent in shape has escaped
The house half the way
Fell empty with teeth that
Split both his lips
Mark these words
One day this chalk outline will circle this city
Was he robbed of the asphalt that cushioned his face?
A room coloured charlatan hid in a safe <--- <--- <--- <--- <--- <---
Stalk the ground
Stalk the ground
You should have seen
The curse that flew right by you
Page of concrete
Stain walks crutch and hobbled sway
Auto de fe
A capillary hint of red
Only this manupod <---- <---- <--- <--- <--- <--- <--- <---
Crescent in shape has escaped
Pull the pins
Save your grace
Mark these words
On his grave
Pull the pins
Save your grace
Mark these words
On his grave
Pull the pins
Save your grace
Mark these words
On his grave
You should have seen
The curse that flew right by you
Page of concrete
Stain walks crutch and hobbled sway
Auto de fe
A capillary hint of red
Everyone knows the last toes are
Always the coldest to go
Sigrún | Litli Kúabóndinn
Ć POD!
OG ARNA MÁGKONA MÍN ER 20 ÁRA Í DAG!!
TIL HAMINGJU SÆTAN!
Jújú.. ég og Louisa erum bara í góðum fíling að horfa á lögin úr Stundinni okkar.. það er rosalegt stuð..
Heyrðu árshátíðin nálgast.. kannski maður fari að leita sér að herra.. ekki mætir maður á fína árshátíð án herra..?
Allavega.. núna eru miðannarprófin að byrja.. þvílíkur bömmer..
Þetta ætti nú að vera komið gott.. það er líklega best að hafa augun á barninu..
Sigrún | Litli Kúabóndinn
